Joshua 12

1Þessir eru konungar landsins, þeir er Ísraelsmenn unnu sigur á og tóku lönd af hinumegin Jórdanar, austanmegin, frá Arnoná til Hermonfjalls og allt sléttlendið austanmegin: 2Síhon, Amorítakonungur, sem bjó í Hesbon og réð landi frá Aróer, sem liggur á bakka Arnonár, og dalnum miðjum og hálfu Gíleað að Jabboká, sem er á landamærum Ammóníta, 3og sléttlendinu að Genesaretvatni að austanverðu og að vatninu á sléttlendinu, Saltasjó, að austanverðu, suður undir Bet Jesímót, og til suðurs að Pisgahlíðum. 4Sömuleiðis land Ógs, konungs í Basan, sem var einn þeirra Refaíta, er eftir voru, og bjó í Astarót og Edreí 5og réð yfir Hermonfjöllum, Salka og öllu Basan, að landamærum Gesúra og Maakatíta, og yfir hálfu Gíleað, að landamærum Síhons, konungs í Hesbon. 6Móse, þjónn Drottins, og Ísraelsmenn höfðu unnið sigur á þeim, og Móse, þjónn Drottins, hafði gefið Rúbenítum, Gaðítum og hálfri ættkvísl Manasse landið til eignar. 7Þessir eru konungar landsins, þeir er Jósúa og Ísraelsmenn unnu sigur á fyrir vestan Jórdan, frá Baal Gað í Líbanonsdal til Skallabergs, sem liggur upp til Seír, _ en landið gaf Jósúa ættkvíslum Ísraels til eignar eftir skiptingu þeirra _, 8í fjalllendinu, á láglendinu, á sléttlendinu, í fjallahlíðunum, í eyðimörkinni og í suðurlandinu, _ land Hetíta, Amoríta, Kanaaníta, Peresíta, Hevíta og Jebúsíta: 9Konungurinn í Jeríkó einn, konungurinn í Aí, sem er hjá Betel, einn, 10konungurinn í Jerúsalem einn, konungurinn í Hebron einn, 11konungurinn í Jarmút einn, konungurinn í Lakís einn, 12konungurinn í Eglon einn, konungurinn í Geser einn, 13konungurinn í Debír einn, konungurinn í Geder einn, 14konungurinn í Horma einn, konungurinn í Arad einn, 15konungurinn í Líbna einn, konungurinn í Adúllam einn, 16konungurinn í Makeda einn, konungurinn í Betel einn, 17konungurinn í Tappúa einn, konungurinn í Hefer einn, 18konungurinn í Afek einn, konungurinn í Saron einn, 19konungurinn í Madón einn, konungurinn í Hasór einn, 20konungurinn í Simrón Meróm einn, konungurinn í Aksaf einn, 21konungurinn í Taanak einn, konungurinn í Megíddó einn, 22konungurinn í Kedes einn, konungurinn í Jokneam hjá Karmel einn, 23konungurinn í Dór í Dórshæðum einn, konungur heiðingjanna í Gilgal einn, 24konungurinn í Tirsa einn, _ alls þrjátíu og einn konungur.
Copyright information for Icelandic